Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 26. ágúst 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Madueke fer ekki frá PSV - Framlengdi til 2025
Noni Madueke er efnilegur leikmaður
Noni Madueke er efnilegur leikmaður
Mynd: EPA
Enski vængmaðurinn Noni Madueke mun ekki fara frá PSV Eindhoven í sumar. Hann ákvað að framlengja samning sinn til 2025 í stað þess að fara aftur til Bretlandseyja.

Madueke er 19 ára gamall og uppalinn í Tottenham en ákvað að fara til Hollands til að fá meiri leikreynslu.

Hann skoraði 9 mörk í 32 leikjum í Hollandi á síðustu leiktíð og byrjar með látum á þessu tímabili.

Madueke hefur skorað 6 mörk í 8 leikjum til þessa og hefur verið orðaður við Leicester og Tottenham.

Hann ákvað þó að sýna PSV hollustu sína og framlengja til ársins 2025 og fer því ekkert í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner