Skoski miðjumaðurinn Scott McTominay verður frá í einhvern tíma en hann hefur gengist undir aðgerð á nára.
Þessi skoski landsliðsmaður hefur spilað báða úrvalsdeildarleiki Manchester United til þessa en hefur fundið fyrir sársauka og félagið metur sem svo að aðgerð sé besti kosturinn.
Þessi skoski landsliðsmaður hefur spilað báða úrvalsdeildarleiki Manchester United til þessa en hefur fundið fyrir sársauka og félagið metur sem svo að aðgerð sé besti kosturinn.
United hefur ekki sagt hvenær búast megi við miðjumanninum öfluga til baka.
Það er þó alveg ljóst að hann missir af leiknum gegn Wolves um helgina og þá er hann ekki í skoska landsliðshópnum fyrir komandi landsleikjaglugga.
Manchester United er með fjögur stig að loknum tveimur umferðum í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir