Alvaro Odriozola hefur samþykkt að ganga í raðir Fiorentina á láni frá Real Madrid. Lánssamningnum fylgir ekkert kaupákvæði.
Odriozola er 25 ára bakvörður sem gekk í raðir Real Madrid frá Sociedad árið 2018. Hann á að baki fjóra leiki fyrir spænska landsliðið.
Odriozola er 25 ára bakvörður sem gekk í raðir Real Madrid frá Sociedad árið 2018. Hann á að baki fjóra leiki fyrir spænska landsliðið.
Á síðasta tímabili lék hann sextán leiki fyrir Real og skoraði tvö mörk.
Ítalski fjölmiðlamaðurinn Gianluca Di Marzio bendir á þá staðreynd að Real Madrid hafi þurft að losa leikmann úr leikmannahópnum til að búa til pláss fyrir nýjan leikmann.
Franska stjarnan Kylian Mbappe hefur verið orðaður við Real í langan tíma og er spænska félagið að íhuga að kaupa Mbappe á metfé.
Athugasemdir