Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 26. ágúst 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Valencia fékk Fabrizio Romano til að tilkynna nýjan framherja
Marcos Andre gerir fimm ára samning við Valencia
Marcos Andre gerir fimm ára samning við Valencia
Mynd: Heimasíða Valencia
Spænska félagið Valencia er búið að ganga frá kaupum á brasilíska framherjanum Marcos Andre frá Real Valladolid. Það var ítalski íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano sem tilkynnti kaupin á síðu Valencia.

Romano er maðurinn sem fólk leitar til þegar það þarf að komast að félagaskiptum um alla Evrópu en hann heldur einnig úti hlaðvarpi þar sem hann fer yfir stöðuna hjá helstu liðum heimsins.

Valencia fékk hann til að tilkynna kaupin á André, sem er 24 ára gamall, en hann gerði fína hluti með Valladolid á síðustu leiktíð.

André gerði fimm ára samning við Valencia en tilkynningu má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner