Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 26. ágúst 2021 18:50
Elvar Geir Magnússon
Vestergaard meiddur á hné
Jannik Vestergaard.
Jannik Vestergaard.
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers, stjóri Leicester, hefur staðfest að varnarmaðurinn Jannik Vestergaard mun ekki spila gegn Norwich í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn.

Ryan Bertrand er klár í slaginn aftur eftir að hafa smitast af Covid-19 og verður skoðaður næsta sólahringinn.

Þá segir Rodgers að Jonny Evans sé ekki á leið í landsliðsverkefni með Norður-Írlandi þrátt fyrir að hafa verið valinn í hópinn.

Leicester fékk skell gegn West Ham á mánudag en liðið er með þrjú stig að loknum tveimur umferðum í ensku úrvalsdeildinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner