Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 26. september 2017 18:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Raggi Sig við Vardy: Engin súpa fyrir þig
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ragnar Sigurðsson átti líklega eftirminnilegustu tæklingu Evrópumótsins sem fram fór í Frakklandi síðasta sumar.

Jamie Vardy, sóknarmaður Leicester og enska landsliðsins, var kominn á fleygiferð í leik Íslands og Englands í 16-liða úrslitum en Ragnar hljóp hann niður og átti magnaða tæklingu. Ísland vann leikinn svo 2-1, en staðan þarna var einmitt 2-1.

Stuðningsmenn íslenska landsliðsins rifja enn upp þessa tæklingu og Ragnar gerir það líka.

Hann birti í dag mynd á Instagram af tæklingunni og skrifar við hana: „Engin súpa fyrir þig."

Hér að neðan má sjá myndina.




No soup for you 👆🏻

A post shared by Ragnar Sigurðsson (@sykurson) on


Athugasemdir
banner
banner
banner