sun 26. september 2021 13:30
Victor Pálsson
Draumaliðsfélagar Lingard léku á Nou Camp
Mynd: EPA
Jesse Lingard, leikmaður Manchester United, nefnir tvo fyrrum leikmenn Barcelona sem sína draumaliðsfélaga.

Leikmennirnir tveir eru þeir Andres Iniesta og Ronaldinho sem unnu ófáa titla með Barcelona og voru hluti af nánast óstöðvandi vél á sínum tíma.

Lingard fær í dag að spila með Cristiano Ronaldo hjá Man Utd en Lionel Messi kemst ekki á blað hjá sóknarmanninum.

„Ef ég gæti spilað með einhverjum leikmanni í sögunni... Ég myndi velja Ronaldinho og Iniesta," sagði Lingard.

„Þeir voru þeir sem ég fylgdist með á yngri árum. Ronaldinho var ótrúlegur leikmaður og það sama má segja um Iniesta."

„Ég fylgdist alltaf með því hvernig Iniesta fór með boltann og þessum holum sem hann komst í. Ég þyrfti að nefna þá tvo, 100 prósent."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner