Íslenski landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason var í spjalli hjá Tómasi Þór Þórðarsyni og Benedikt Bóas Hinrikssyni í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu 97,7 í dag.
Arnór Ingvi er á mála hjá Malmö hjá Svíþjóð en liðið er eitt af fjórum liðum sem berjast um titilinn þegar tvær umferðir eru eftir.
Malmö mætir Kolbeini Sigþórssyni og félögu í AIK í risaleik í toppbaráttunni á mánudagskvöld.
Arnór ræddi einnig um tölvuleikinn Counter-strike í viðtalinu en hann er í stjórn í nýstofnaðri rafíþróttadeild hjá KR.
Staðan þegar tvær umferðir eru eftir í Svíþjóð
1. Djurgarden 62 stig (+31)
2. Hammarby 59 stig (+33)
3. Malmö 59 stig (+33)
4. AIK 59 stig (+24)
Hlustaðu í spilaranum hér að ofan eða í gegnum Podcast forrit.
Athugasemdir