Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 26. nóvember 2019 14:37
Magnús Már Einarsson
Salah lítur vel út - Gæti byrjað á morgun
Salah í fyrri leiknum gegn Napoli í vetur.
Salah í fyrri leiknum gegn Napoli í vetur.
Mynd: Getty Images
„Mo lítur mjög vel út," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, á fréttamannafundi í dag aðspurður út í Mohamed Salah.

Liverpool mætir Napoli í Meistaradeildinni annað kvöld og Salah gæti snúið aftur í liðið þar eftir ökklameiðsli.

Egyptinn var á bekknum gegn Crystal Palace um helgina en hann gæti byrjað á morgun.

„Við sjáum til í dag en ég hef ekki of miklar áhyggjur af því," sagði Klopp.

Varnarmaðurinn Joel Matip er ennþá fjarverandi vegna hnémeiðsla en hann fer í skoðun í vikunni þar sem staðan kemur betur í ljós.
Athugasemdir
banner
banner
banner