Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 26. nóvember 2019 10:09
Magnús Már Einarsson
Þjálfari Hammarby blæs á Zlatan fréttir: Þetta er grín
Mynd: Getty Images
Stefan Billborn, þjálfari Hammarby, hefur blásið á fréttir þess efnis að Zlatan Ibrahimovic sé á leið til félagsins.

Zlatan birti í morgun óvænt myndband treyju Hammarby með nafni sínu aftan á.

„Ég reikna með að þetta sé eitthvað grín. Ég verð mjög hissa ef Zlatan kemur til okkar. Ég trúi þessu ekki," sagði Billborn.

Hinn 38 ára gamli Zlatan er í leit að nýju félagi en hann hefur mest verið orðaður við endurkomu í ítalska boltann. AC Milan, Napoli og Bologna vilja öll fá hann í sínar raðir.

Sjá einnig:
Zlatan að staðfesta að hann fari í Hammarby?
Athugasemdir
banner
banner
banner