Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 26. nóvember 2021 17:00
Elvar Geir Magnússon
Eitt mest spennandi ungstirni enska boltans
Tino Livramento.
Tino Livramento.
Mynd: EPA
Hinn nítján ára gamli Tino Livramento, bakvörður Southampton, er einn mest spennandi ungi leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar.

Leikmaðurinn var í unglingastarfi Chelsea en fór yfir til Southampton til að fá aðalliðsbolta. Ralph Hasenhuttl hefur gríðarlega trú á stráknum og henti honum beint í byrjunarliðið í fyrsta leik tímabilsins.

Fjallað er um leikmanninn í grein sem BBC birtir í morgun og þar kemur fram að hann hafi byrjað sem miðvörður, svo orðið framherji en þróaðist síðan út í sókndjarfan bakvörð.

„Ég man eftir því þegar þjálfarinn minn sagði mér að ég væri frábær í að klára færi og með hraðann sem vængmaður þarf á að halda," segir Livramento sem ólst upp sem aðdáandi Cristiano Ronaldo enda með portúgalskar rætur í föðurætt.

Livramento ákvað það í samráði við föður sinn að það væri best fyrir sig að yfirgefa Chelsea. Það var ekki auðveld ákvörðun enda hefur hann verið stuðningsmaður Chelsea alla tíð og verið hjá félaginu frá sjö ára aldri.

Brighton, AC Milan og Mónakó höfðu áhuga á Livramento en eftir fund með Hasenhuttl varð Southampton fyrir valinu. Hjá Dýrlingunum hefur leikmaðurinn blómstrað, verið öruggur varnarlega og hættulegur sóknarlega.

Spennandi verður að sjá Livramento, sem hefur verið líkt við ungan Gareth Bale, mæta stórliði Liverpool á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner