Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. desember 2017 20:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Einkunnir Liverpool og Swansea: Roberto Firmino fær hæstu einkunn
Roberto Firmino skoraði tvö í dag.
Roberto Firmino skoraði tvö í dag.
Mynd: Getty Images
Liverpool rúllaði yfir Swansea fyrr í kvöld en þeir skoruðu fimm mörk gegn engu marki gestanna.

Þeir Philippe Coutinho, Roberto Firmino, Trent Alexander Arnold og Alex Oxlade-Chamberlain skoruðu mörkin, Brasilíumaðurinn Roberto Firmino skoraði tvö.

Roberto Firmino fékk hæstu einkunn þeirra sem léku á Anfield í dag hjá Sky Sports.

Hjá Swansea sem er í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar gekk lítið sem ekkert upp í dag og það voru margir leikmenn sem fengu þrist fyrir frammistöðu sína.

Einkunnir Liverpool: Mignolet (6), Alexander-Arnold (8), Matip (7), Klavan (7), Robertson (7), Oxlade-Chamberlain (8), Can (6), Wijnaldum (6), Salah (7), Firmino (8), Coutinho (8).

Varamenn: Milner (5), Lallana (6), Solanke (6).

Einkunnir Swansea: Fabianski (5), Naughton (3), Fernandez (4), Mawson (4), Olsson (4), Fer (3), Roque (3), Carroll (4), Routledge (3), Ayew (3), McBurnie (4).

Varamenn: Abraham (5), Clucas (5), Sanches (5).

Maður leiksins: Roberto Firmino.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner