Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 26. desember 2017 14:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fellaini: Veit ekki hvort ég muni samþykkja samninginn
Mynd: Getty Images
Marouane Fellaini býst við samningstilboði frá Manchester United á næstu dögum.

Samningur belgíska miðjumannsins við félagið rennur út næsta sumar og segist hann ekki vera viss hvort hann vilji vera áfram hjá Rauðu djöflunum eða ekki.

„Man Utd er búið að bjóða mér samning. Ég held að félagið muni bjóða mér annan samning," sagði Fellaini.

„Ég veit ekki enn hvort ég muni samþykkja þann samning, það kemur í ljós bráðlega.

„Ég er búinn að ræða við Mourinho um málið. Hann er stjóri sem virðir ákvarðanir leikmanna."

Athugasemdir
banner
banner