Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. desember 2017 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Klopp: Við erum varnarsinnað lið
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp telur Liverpool vera varnarsinnað lið, þrátt fyrir að hafa skorað næstflest mörk af öllum í úrvalsdeildinni.

Varnarleikur Liverpool hefur virkað eins og götótt sigti hingað til og er liðið búið að fá á sig 23 mörk, þremur minna en botnlið Swansea.

„Við erum varnarsinnað lið. Við verjumst á tíu leikmönnum, það er einfaldlega betra að verjast á sóknarsinnuðum leikmönnum því þá eru miklu meiri líkur á því að skora þegar maður nær boltanum," sagði Klopp.

Liverpool komst 2-0 yfir gegn Arsenal á Emirates leikvanginum í síðustu umferð en heimamenn náðu að gera þrjú mörk á fimm mínútna kafla.

„Á föstudaginn fengum við enga skyndisókn á okkur, aftur. Þeir fengu engin alvöru færi fyrir utan þennan fimm mínútna kafla.

„Við spiluðum 4-5-1 og áttu allir leikmenn þátt í því að verjast. Mörkin koma ekki útaf lélegum varnarleik, þau koma því við leyfum þeim að gefa fyrir og við leyfum þeim að skjóta, eins og gerist í fótbolta."


Það eru átta leikir á dagskrá í dag og á Liverpool heimaleik gegn Swansea klukkan 17:30.
Athugasemdir
banner
banner