Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 26. desember 2017 17:56
Ívan Guðjón Baldursson
Mourinho: Skil ekki hvernig þeir skora þessi mörk
Mourinho og Dyche skipta stigunum á milli sín.
Mourinho og Dyche skipta stigunum á milli sín.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho segir sína menn hafa átt meira skilið en stig úr leiknum gegn Burnley í dag.

Burnley mætti á Old Trafford og komst tveimur mörkum yfir. Jesse Lingard kom inn í hálfleik og gerði tvennu í síðari hálfleik.

„Við áttum að vinna í dag, já. Við áttum líka að vinna gegn Leicester. Við vorum miklu betri í báðum leikjunum," sagði Mourinho eftir tapið gegn Burnley.

„Ég skil ekki hvernig þeir skora þessi mörk og verjast svo í 95 mínútur. Eitt úr aukaspyrnu og annað eftir fáránlegan atgang í vítateignum. Við tókum áhættu í síðari hálfleik og hún skilaði sér. Jones var einn í vörn.

„Við náðum allavega í stig, sem er það minnsta sem strákarnir áttu skilið eftir þessa frammistöðu.

„Ég er ánægður með viðbrögðin. Við lendum tveimur mörkum undir og náum að jafna."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner