David Moyes hefur byrjað þokkalega vel með West Ham og hefur áhuga á að fá Steven N'Zonzi til félagsins í janúar.
N'Zonzi spilar fyrir Sevilla á Spáni og hefur ekki verið mikið viðriðinn byrjunarliðið á tímabilinu. Það gæti þó breyst eftir brottrekstur Eduardo Berizzo úr þjálfarastöðunni.
N'Zonzi spilar fyrir Sevilla á Spáni og hefur ekki verið mikið viðriðinn byrjunarliðið á tímabilinu. Það gæti þó breyst eftir brottrekstur Eduardo Berizzo úr þjálfarastöðunni.
„Við höfum áhuga á N'Zonzi ef hann kemur á markaðinn. Af einhverjum ástæðum hefur hann ekki verið að fá spilatíma hjá Sevilla, en staðan gæti breyst eftir stjóraskiptin" sagði Moyes.
„Okkur sárvantar miðjumann og við höfum auga á nokkrum sem gætu leyst stöðuna af hólmi."
Hamrarnir eru aðeins einu stigi fyrir ofan fallsvæðið, með 17 stig eftir 19 umferðir. Þeir heimsækja Bournemouth í fallbaráttuslag í dag.
N'Zonzi er 29 ára miðjumaður sem hefur leikið fyrir Blackburn og Stoke í enska boltanum.
Athugasemdir