Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segir að Chelsea sé með besta leikmannahópinn í ensku úrvalsdeildinni.
Þetta segir Arteta fyrir leik liðanna í kvöld en Chelsea heimsækir Arsenal í úrvalsdeildinni klukkan 17:30.
Chelsea styrkti sig ansi vel í sumarglugganum og fékk til sín leikmenn á borð við Kai Havertz og Timo Werner.
„Augljóslega þá er Chelsea með frábæran hóp af leikmönnum," sagði Arteta við blaðamenn.
„Liðið sem við mættum fyrir nokkrum mánuðum var topplið. Nú erum við örugglega að tala um sterkasta hóp deildarinnar."
„Þeir eru að gera mjög góða hluti og það sama má segja um Frank Lampard."
Athugasemdir