Marcus Rashford skoraði fyrra mark Manchester United þegar liðið gerði jafntefli við Leicester á útivelli í ensku úrvalsdeildinni, 2-2.
Það var Bruno Fernandes sem átti stoðsendinguna og var Portúgalinn virkilega ánægður með hana. Fernandes náði að setja tánna í boltann og sá þannig til þess að hann færi á Rashford.
Rashford kláraði vel og fór út að hornfána til að fagna markinu. Fernandes fór og fagnaði með honum, en míkrafónn á vellinum náði því sem fór á milli leikmanna í fagnaðarlátunum.
Fernandes sagði við Rashford: „Sástu stoðsendinguna mína?
Hér að neðan má sjá myndband af þessu.
Bruno Fernandes to Marcus Rashford: “Did you see my assist?” 😂😂😂
— United Zone (@ManUnitedZone_) December 26, 2020
pic.twitter.com/nkCe0mVq11
Athugasemdir