Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 26. desember 2020 12:00
Victor Pálsson
„Foden þarf að róa sig niður"
Mynd: Getty Images
Phil Foden, leikmaður Manchester City, þarf að róa sig niður á síðasta þriðjung vallarins að sögn Pep Guardiola, stjóra liðsins.

Foden er aðeins 20 ára gamall en hann fær nóg að spila undir Guardiola þessa dagana þar sem leikjaálagið er mikið.

Enski landsliðsmaðurinn skoraði í 4-1 sigri á Arsenal í deildabikarnum í miðri viku og gæti leikið gegn Newcastle í kvöld.

„Ungu leikmennirnir eru með ótrúlega orku en á síðasta þriðjungnum fyrir síðustu sendinguna þurfa þeir að róa sig niður," sagði Guardiola.

„Það er orkan fyrir leikmann á þessum aldri, hann vill sigra heiminn og vera mikilvægur."

„Hann verður að skilja þetta en það fylgir reynslunni. Það þýðir ekki að þú þurfir að læra þetta núna, hann hefur enn tíma."
Athugasemdir
banner
banner
banner