Brasilíski miðvörðurinn Gabriel Magalhaes þarf að fara í sóttkví og missir því af næstu þremur leikjum Arsenal.
Gabriel þarf að vera í sóttkví eftir að einstaklingur sem hann umgekkst greindist með kórónuveiruna.
Gabriel fer í tveggja vikna sóttkví og missir því af grannaslagnum gegn Chelsea sem er í gangi núna og næstu leikjum gegn Brighton og West Brom í ensku úrvalsdeildinni. Hann verður því væntanlega klár í slaginn í FA bikarnum gegn Newcastle 9. janúar.
Gabriel gekk í raðir Arsenal í september og hefur verið meðal bestu leikmanna liðsins á arfaslöku tímabili.
Arsenal er aðeins með 14 stig eftir 14 umferðir í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir