Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 26. desember 2020 09:00
Victor Pálsson
Liverpool hefur ekki áhuga á Sanches
Mynd: Getty Images
Englandsmeistarar Liverpool hafa ekki áhuga á að semja við miðjumanninn Renato Sanches í janúarglugganum.

Frá þessu greinir Liverpool Echo en Sanches hefur óvænt verið orðaður við þá rauðklæddu síðustu vikur.

Ýmis blöð hafa fjallað um áhuga Liverpool og segja sumir að það sé nú þegar búið að ná samkomulagi við leikmanninn.

Echo fullyrðir hins vegar að það sé rangt og að Portúgalinn sé ekki á leið á Anfield þegar glugginn opnar í janúar.

Sanches hefur staðið sig vel með Lille í Frakklandi eftir misheppnaða dvöl hjá bæði Bayern Munchen og Swansea.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner