Knattspyrnustjórinn Steve McClaren telur að Manchester United sé klárlega að berjast um Englandsmeistaratitilinn á þessu tímabili.
Man Utd hefur verið að taka við sér í síðustu leikjum og vann til að mynda frábæran 6-2 sigur á Leeds á sunnudag.
Man Utd er aðeins fimm stigum á eftir Liverpool á toppi deildarinnar og á einnig leik til góða.
„Þeir eru með leikmennina og þeir eru að komast í form. Ég heyrði Ole tala um að líkamsstandið væri að batna - það var ekki þar í byrjun tímabils," sagði McClaren.
„Miðað við gæði leikmannana sem þeir eru með og mörkin í liðinu, þeir geta unnið hvaða leik sem er."
„Þeir eru þarna uppi, trúið mér. Þeir eru klárlega í baráttu um titilinn."
Athugasemdir