Steven Bergwijn, kantmaður PSV Eindhoven, hefur blásið á sögusagnir þess efnis að hann hafi neitað að spila í 1-1 jafntefli gegn Twente í hollensku úrvalsdeildinni í gær.
Tottenham er í viðræðum um kaup á Bergwijn en hann spilaði ekki í gær og hollenskir fjölmiðlar sögðu að hann hefði neitað að spila.
Bergwijn segir hins vegar að það sé ekki rétt.
Tottenham er í viðræðum um kaup á Bergwijn en hann spilaði ekki í gær og hollenskir fjölmiðlar sögðu að hann hefði neitað að spila.
Bergwijn segir hins vegar að það sé ekki rétt.
„Það hefur verið mikið skrifað um mig og ég hef lesið það sjálfur. Ég er mjög svekktur með þetta því það er enginn sannleikur í þessu," sagði Bergwijn á Instagram.
„Ég neitaði aldrei að spila fyrir PSV og ég myndi aldrei gera það. Ég hef verið hérna síðan ég var ungur. PSV er í hjarta mínu. Ég hef aldrei neitað að spila fyrir PSV. Eins og þið sjáið þá snúa fjölmiðlar út úr öllu."
Athugasemdir