Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 27. febrúar 2014 14:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Liverpool skipuleggur ágóðaleik til að minnast Hillsborough
Robbie Fowler mun spila.
Robbie Fowler mun spila.
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur ákveðið að halda ágóðaleik í apríl en þá verða 25 ára frá Hillsborough slysinu þar sem 96 stuðningsmenn liðsins létu lífið.

Ágóðaleikurinn fer fram á Anfield á annan í páskum en þar mætast fyrrum leikmenn Liverpool frá Englandi og lið skipað fyrrum leikmönnum Liverpool frá öðrum löndum.

Kenny Dalglish mun þjálfa heimaliðið en Ian Rush, Robbie Fowler, Steve McManaman og Jamie Carragher eru á meðal leikmanna sem hafa staðfest þátttöku sína.

Gerard Houllier mun þjálfa erlenda liðið en Jan Molby, Dietmar Hamann, Vladimir Smicer og Luis Garcia munu spila með því.

Sjá einnig:
Fréttaskýring: 24 ár liðin frá Hillsborough slysinu (Apríl 2013)
Athugasemdir
banner
banner