Lokomotiv 2 - 0 CSKA
1-0 Vitali Lisakovich ('6 )
2-0 Grzegorz Krychowiak ('41 )
2-0 Nikola Vlasic ('73, klúðrað víti)
1-0 Vitali Lisakovich ('6 )
2-0 Grzegorz Krychowiak ('41 )
2-0 Nikola Vlasic ('73, klúðrað víti)
Þeir Arnór Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon voru báðir í byrjunarliði CSKA þegar liðið tapaði gegn grönnunum í Lokotiv í dag. Í byrjunarliði CSKA mátti einnig sjá Salomon Rondon, framherja sem átti góð tímabil í ensku úrvalsdeildinni fyrir ekki svo löngu síðan.
Þetta var fyrsti byrjunarliðsleikur Rondon hjá CSKA frá því hann kom frá Guangzhou í kínversku deildinni í janúar.
Þeir Lisakovich og Krychowiak skoruðu mörk Lokomotiv í fyrri hálfleik. Hörður lék allan leikinn en Arnór fór af velli í hálfleik. Hörður lék í miðverði í fjögurra manna vörn og Arnór lék á vinstri vængnum.
CSKA er í 2. sæti, fimm stigum á eftir toppliði Zenit þegar tuttugu af þrjátíu leikjum þessara tveggja liða er lokið.
Athugasemdir