Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 27. febrúar 2023 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Raya hafnaði tveimur samningstilboðum
Mynd: EPA
Mynd: Getty Images

David Raya, 27 ára markvörður Brentford og spænska landsliðsins, á eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við Lundúnafélagið en vill skipta um félag sem fyrst.


Raya viðurkennir í viðtali að hann hafi hafnað tveimur samningstilboðum frá Brentford því hann sé staðráðinn í því að spila fyrir stórlið sem getur barist um alla stærstu titlana.

„Ég hafnaði einum samningi í fyrra og öðrum í janúar. Þetta voru ekki nægilega góð samningstilboð fyrir mig, það er allt sem ég get sagt," sagði Raya við The Athletic.

„Ég er bara einbeittur að því að spila fótbolta og ég er ekki mikið að velta framtíðinni fyrir mér. Ég er tilbúinn til að virða samninginn sem ég hef við félagið og gæti verið hérna næstu 18 mánuði en það er aldrei að vita hvað gerist í sumar. Brentford fær að ákveða verðmiðann á mér og kannski verður eitthvað félag reiðubúið til að borga. Ég hef engar áhyggjur af framtíðinni.

„Markmiðið mitt er að spila í Evrópukeppni og berjast um titla. Ég vil vinna stærstu titlana, ég hef fulla trú á sjálfum mér."

Tottenha, Manchester United og Chelsea eru meðal félaga sem hafa verið orðuð við Raya á tímabilinu.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner
banner