Jose Mourinho, stjóri Fenerbahce í Tyrklandi, er núna sagður íhuga það að fara í mál við Galatasaray eftir að þeir sökuðu hann um rasisma.
Mourinho sagði í viðtali eftir markalaust jafntefli gegn Galatasaray að menn á varamannabekknum hjá Galatasaray hefðu hoppað um eins og apar. Þá sagði hann að það hefði orðið stórslys ef tyrkneskur dómari hefði dæmt leikinn en tyrkneska fótboltasambandið ákvað að fá slóvenskan dómara til starfa í leiknum.

Galatasaray hótaði því í kjölfarið að kæra Mourinho til UEFA og FIFA fyrir rasisma en Fenerbahce sendi frá sér yfirlýsingu þar sem félagið sagði það illgjarnt að mála Mourinho upp sem rasista.
Mourinho er sagður verulega ósáttur við ásakanir Galatasaray og íhugar að fara í mál við félagið.
Galatasaray er á toppi tyrknesku deildarinnar, sex stigum á undan Fenerbahce sem er í öðru sæti.
Athugasemdir