Nunes á blaði hjá Atletico Madrid - Pedro á radarnum hjá Liverpool - Eze orðaður við Tottenham
   fim 27. febrúar 2025 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Salah hefur jafnað sinn besta árangur - Nálægt því að bæta met
Mynd: EPA
Mohamed Salah er að njóta þess að spila með Liverpool á þessu tímabili sem gæti verið hans síðasta hjá félaginu en samningur hans rennur út næsta sumar.

Salah lagði upp annað mark Liverpool í 2-0 sigri á Newcastle í gær en það var sautjánda stoðsendingin hans í úrvalsdeildinni.

Auk þess hefur hann skorað 25 mörk og hann jafnaði því sinn besta árangur þegar kemur að því að skora og leggja upp á einu tímabili. Hann skoraði 32 mörk og lagði upp tíu tímabilið 2017/18.

Hann þarf aðeins að skora og leggja upp samtals þrjú mörk í viðbót til að bæta metið yfir 38 leiki en hann þarf að skora og/eða leggja upp sex mörk til að bæta metið í sögu úrvalsdeildarinnar en það met eiga Alan Shearer og Andy Cole.


Athugasemdir
banner
banner
banner