Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. mars 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Liverpool þakkar heilbrigðisstarfsfólki
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur birt myndband á Twitter þar sem leikmenn karla og kvennaliðs félagsins og starfsfólk þakkar heilbrigðisstarfsfólki fyrir vinnuna sem það leggur á sig í baráttu við kórónuveiruna.

„Ég, starfsfólk og leikmenn LFC vilja nýta þetta tækifæri til að senda skilaboð og þakka öllu þessu ótrúlega fólki sem vinnur í heilbrigðisgerianum," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.

Jordan Henderson og Trent Alexander-Arnold þökkuðu hetjunum sem vinna í heilbrigðisgeiranum.

Margir aðrir leikmenn komu einnig með skilaboð en myndbandið má sjá hér að neðan.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner