Pedro, kantmaður Chelsea, segir ekki rétt að hann sé pottþétt á förum frá félaginu í sumar. Pedro er að verða samningslaus í sumar og fjölmiðlar á Spáni höfðu eftir honum að hann væri á förum.
„Eins og margir vita er samningur minn á enda í maí en ég hef ekki ennþá rætt við neinn hjá félaginu um það hvort ég framlengi og haldi áfram," sagði hinn 32 ára gamli Pedro við heimasíðu Chelsea.
„Ég hef séð mikið af skilaboðum frá stuðningsmönnum Chelsea að segja bless og þakka mér fyrir tímann hér, ég kann að meta það en ég vil segja við stuðningsmenn að samningur minn er að enda og ég hef ekki ennþá rætt við félagið."
„Ég veit ekki hvort ég haldi áfram að spila hér eða ekki. Það samtal á eftir að koma. Ég hef ekki skrifað undir hjá öðru félagi. Ég tilheyri Chelsea. Ég er með samning. Ósk mín er að vera áfram hér en auðvitað vitum við ekki hvað gerist."
Athugasemdir