Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 27. mars 2021 20:25
Aksentije Milisic
Aðstoðarþjálfari Úrúgvæ segir Cavani að yfirgefa Man Utd
Mynd: Getty Images
Edinson Cavani hefur verið hvattur til þess að yfirgefa Manchester United í sumar af aðstoðarþjálfara Úrúgvæ.

Framtíð Cavani er óljós sem stendur en samningur hans við United rennur út eftir einungis nokkra mánuði.

Mario Rebollo, aðstoðarþjálfari Úrúgvæ, telur að það sé best bæði fyrir Cavani og landsliðið að hann komi aftur til Suður-Ameríku.

„Það hjálpar landsliðinu ef Cavani fer til Boca Juniors eða eitthvað þannig lið," sagði Rebello.

„Aðalmálið er að hann spili þar sem honum líður vel og þar sem samkeppnin er góð. Ef hann kæmi nær okkur þá væri það frábært. Það er samt einungis ef honum myndi liða vel með það."

Cavani hefur átt góða rispur með Manchester United í vetur. Hann hefur hins vegar verið töluvert meiddur og þá var hann einnig dæmdur í þriggja leikja bann fyrr á tímabilinu.


Athugasemdir
banner
banner