Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 27. mars 2021 21:30
Aksentije Milisic
Bale ekki í plönum Real á næsta tímabili
Mynd: Getty Images
Gareth Bale er ekki í plönum Real Madrid á næsta tímabili og ætlar félagið að reyna selja leikmanninn.

Bale er á láni hjá Tottenham Hotspur á þessu tímabili en hann sagði nýverið í viðtali að hann myndi ekki vera áfram hjá Spurs eftir þetta tímabil og að hann færi aftur til Spánarmeistarana.

Samkvæmt Marca þá er Bale ekki í plönum Real og Zinedine Zidane á næsta tímbili og því ætlar félagið sér að selja leikmanninn í sumar. Bale á eitt ár eftir af samningi sínum við Real og myndi því fara frítt eftir rúmlega ár.

Real hefur verið orðað við Erling Haaland, Harry Kane og Kylian Mbappe og þá hefur félagið reynt að fá David Alaba á frjálsri sölu frá Bayern Munchen.

Bale virtist vera finna sitt gamla form í treyju Tottenham í febrúar og mars mánuði en hann er nú aftur kominn á bekkinn hjá Jose Mourinho, stjóra Tottenham.
Athugasemdir
banner
banner
banner