Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 27. mars 2021 16:54
Ívan Guðjón Baldursson
England: Daníel Leó kom við sögu
Mynd: Getty Images
Blackpool 2 - 2 Plymouth
0-1 R. Hardie ('12)
1-1 S. Kaikai ('47)
2-1 J. Yates ('64, víti)
2-2 J. Edwards ('91)

Daníel Leó Grétarsson kom við sögu er Blackpool gerði 2-2 jafntefli við Plymouth í ensku C-deildinni í dag.

Daníel Leó stimplaði sig afar vel inn í lið Blackpool en missti af tveimur mánuðum í byrjun árs vegna meiðsla.

Hann er þó búinn að jafna sig og er orðinn faðir og kom inná í sínum fyrsta keppnisleik síðan í janúar í dag.

Staðan var 0-1 fyrir Plymouth þegar Daníeli var skipt inn í hálfleik. Blackpool jafnaði og komst yfir en gestirnir náðu að gera jöfnunarmark í uppbótartíma og urðu lokatölur því 2-2.

Blackpool er í harðri umspilsbaráttu, með 57 stig eftir 35 umferðir.
Athugasemdir
banner
banner