Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 27. mars 2021 18:15
Aksentije Milisic
Lingard við markvörð San Marino: Ég átti sjö skot!
Mynd: Getty Images
Jesse Lingard sneri aftur í enska landsliðshópinn á dögunum og var hann í byrjunarliðinu gegn San Marino í fyrradag í undankeppni HM 2022.

England vann leikinn með fimm mörkum gegn engu en liðið átti alls 32 skot í leiknum. Markvörður gestanna, Elia Benedittini, sem er varamarkvörður í Serie C á Ítalíu, átti mjög góðan leik þrátt fyrir 5-0 tap.

Lingard átti sömuleiðis góðan leik en þrátt fyrir það tókst honum ekki að skora í leiknum. Eftir leik spjallaði við hann markvörð San Marino. Lingard hrósaði honum og grínaðist í honum í leiðinni.

„Ég átti sjö skot, þú varðir öll hjá mér en ekki hjá hinum!" sagði Lingard hlægjandi áður en hann hrósaði Elia fyrir flotta frammistöðu.

England mætir Albaníu á útivelli á morgun en San Marino mætir Ungverjalandi á heimavelli.


Athugasemdir
banner