Undankeppni heimsmeistaramótsins heldur áfram í dag en það er mikið af öflugum leikjum. Serbía og Portúgal eigast við í A-riðli á meðan Tékkland og Belgía eigast við í hörkuleik í E-riðli.
Bæði Portúgal og Serbía unnu fyrstu leiki sína í undankeppninni á dögunum en það er alltaf mikil spenna í leikjum þessara liða. Írland mætir þá Lúxemborg í sama riðli klukkan 19:45.
Belgía og Tékkland eigast við í stærsta leiknum í E-riðli og þá á Noregur erfiðan leik fyrir höndum í G-riðli er liðið mætir Tyrklandi á meðan Holland spilar við Lettland.
Rússland mætir Slóveníu í H-riðli en hér fyrir neðan má sjá alla leiki dagsins.
Leikir dagsins:
A-riðill
19:45 Serbía - Portúgal
19:45 Írland - Luxembourg
E-riðill
17:00 Hvíta Rússland - Eistland
19:45 Tékkland - Belgía
G-riðill
14:00 Montenegro - Gibraltar
17:00 Noregur - Tyrkland
17:00 Holland - Lettland
H-riðill
14:00 Rússland - Slovenia
17:00 Króatía - Kýpur
19:45 Slóvakía - Malta
Athugasemdir