mán 27. apríl 2020 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Arsenal leiðir kapphlaupið um Willian
Willian gæti elt David Luiz til Arsenal
Willian gæti elt David Luiz til Arsenal
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal er í kjörstöðu í baráttunni um brasilíska vængmanninn Willian. ESPN greinir frá.

Willian, sem er 31 árs gamall, verður samningslaus í sumar en hann hefur spilað fyrir Chelsea síðustu sjö árin.

Leikmaðurinn er ánægður hjá Chelsea en talið er að félagið vilji aðeins bjóða honum eins árs samning. Willian vill lengri samning og ef það stendur ekki til boða þá mun hann leita annað.

Samkvæmt ESPN þá er Arsenal í bílstjórasætinu en þó kemur fram að allt sé enn galopið. Liverpool hefur einnig sýnt honum áhuga.

Það sem gæti þó spilað stóra rullu er að David Luiz er á mála hjá Arsenal en þeir tveir eru perluvinir og spiluðu saman hjá Chelsea og auðvitað brasilíska landsliðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner