Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 27. apríl 2020 10:30
Magnús Már Einarsson
Leikmenn Arsenal hefja æfingar
Mynd: Getty Images
Arsenal stefnir á að láta leikmenn sína hefja æfingar á nýjan leik í þessari viku.

Arsenal verður þar með fyrsta liðið í ensku úrvalsdeildinni til að hefja æfingar á nýjan leik eftir að kórunaveirufaraldurinn kom til Englands.

Strangar reglur verða varðandi æfingarnar en leikmenn æfa í litlum hópum og þurfa að passa upp á að halda fjarlægð á æfingum til að virða tveggja metra regluna.

Leikmenn koma tilbúnir í æfingafötum á æfinguna og fara beint út á æfingavöll en allar byggingar á æfingasvæðinu verða lokaðar.

Leikmenn fara síðan heim beint eftir æfingu í stað þess að fara í sturtu og borða í mötuneyti Arsenal eins og venjan er.
Athugasemdir
banner
banner