Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 27. apríl 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Milan reynir að fá Florentino Luis
Florentino Luis í leik með Benfica
Florentino Luis í leik með Benfica
Mynd: EPA
Ítalska félagið AC Milan ætlar að reyna við Florentino Luis, leikmann Benfica í Portúgal, en þetta kemur fram á Calciomercato.

Milan hefur lengi haft áhuga á þessum tvítuga miðjumanni en viðræður sigldu í strand á síðasta ári eftir að Benfica tjáði félaginu að það vildi 120 milljón evrur fyrir leikmanninn.

Ítalska félagið ætlar að reyna aftur við hann í sumar en í þetta sinn mun Lucas Paqueta vera partur af dílnum.

Samningur Florentino rennur út árið 2024 og er hann sagður afar áhugasamur um að fara til Milan. Hann fékk ekki eins mikinn spiltíma á þessu tímabili eins og hann hafði vonast og vill fá nýja áskorun.
Athugasemdir
banner
banner
banner