banner
   mán 27. apríl 2020 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ronaldo Nazario sá besti sem Mourinho hefur séð
Ronaldo í leik með Real Madrid.
Ronaldo í leik með Real Madrid.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Tottenham, er á þeirri skoðun að Ronaldo sé besti leikmaður sem hann hefur séð spila fótbolta.

Hann er þá ekki að tala um portúgalska Ronaldo, heldur þann brasilíska.

„Cristiano Ronaldo og Lionel Messi hafa átt lengri ferla, þeir hafa verið á toppnum á hverjum degi í 15 ár," sagði Mourinho í samtali við LiveScore.

„Hins vegar, ef við erum bara að tala hæfileika og gæði, þá er enginn betri en Ronaldo (Nazario). Þegar hann var hjá Barcelona með Bobby Robson þá vissi ég að hann væri besti leikmaður sem ég hefði nokkurn tímann séð."

„Meiðsli drápu feril sem hefði getað verið enn ótrúlegri en hann var. Hæfileikarnir sem hann hafði 19 ára gamall voru eitthvað annað magnaðir."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner