Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 27. apríl 2021 21:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Einkunnir í Madrid: Thiago Silva bestur
Mynd: EPA
Thiago Silva var valinn maður leiksins þegar Chelsea og Real Madrid gerðu 1-1 jafntefli á Aldredo di Stefano vellinum í Madrid. Leikurinn var fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Það var Christian Pulisic sem kom Chelsea yfir en Karim Benzema jafnaði leikinn um stundarfjórðungi seinna.

Pulisic og Benzema fá báðir átta í einkunn líkt og þeir Thibaut Courtois, Thiago Silva og N'Golo Kante. Kante var valinn UEFA leikmaður leiksins.

Einkunnir Sky Sports

Real Madrid: Courtois (8), Marcelo (6), Nacho (6), Militao (7), Varane (7), Carvajal (6), Casemiro (6), Modric (6), Kroos (6), Vinicius (6), Benzema (8)

Varamenn: Hazard (6), Asensio (6)

Chelsea: Mendy (7), Azpilicueta (7), Christensen (7), Rudiger (7), Silva (8), Chilwell (7), Jorginho (7), Kante (8), Mount (7), Werner (6), Pulisic (8)

Varamenn: Havertz (7), Ziyech (7), James (7)

Maður leiksins: Thiago Silva

Athugasemdir
banner
banner