Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 27. maí 2021 22:19
Aksentije Milisic
3. deild: Ægir og Víðir á sigurbraut
Ægir vann í kvöld.
Ægir vann í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Tveir leikir fóru fram í 3. deild karla í kvöld en spilað er í fjórðu umferð deildarinnar.

Á Þorlákshafnarvelli áttust við Ægir og ÍH. Leiknum lauk með 1-0 sigri heimamanna þar sem Ervist Pali gerði eina mark leiksins. Ægir er nú með átta stig eftir fjóra leiki á meðan ÍH er með tvö.

Á Nesfisk vellinum í Garði áttust við Víðir Garði og KFG. Þeim leik lauk einnig 1-0 og voru það heimamenni í Víði sem tóku öll stigin úr leiknum í kvöld.

Víðir er með sjö stig eftir fjórar umferðir en KFG er með sex stig eftir þrjá leiki. Liðið hafði unnið fyrstu tvo leiki sína áður en það kom að leiknum í kvöld.

Ægir 1-0 ÍH
1-0 Ervist Pali

Víðir 1-0 KFG
1-0 Markaskorara vantar
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner