Villareal vann Manchester United í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í gærkvöldi þar sem dramatíkin var allsráðandi.
Villareal vann eftir maraþon vítaspyrnukeppni en allir leikmenn Villareal skoruðu úr sínum spyrnum á meðan David de Gea klúðraði fyrir United.
Þetta var í fjórða skiptið sem Unai Emery, þjálfari Villareal, vinnur þessa keppni. Magnaður árangur.
Geronimo Rulli, markvörður Villareal, skoraði úr sinni spyrnu af miklu öryggi áður en hann varði spyrnu de Gea. United mistókst því að vinna sinn fyrsta titil undir stjórn Ole Gunnar Solskjær.
Bruno Fernandes, fyrirliði United í gær, grét í leikslok. Hann hafði sjálfur talað um fyrir leik að þetta væri mikilvægur titill og að ef félagið myndi vinna hann þá væri þetta góður stökkpallur fyrir stærri og fleiri titla. Svo gerðist hins vegar ekki.
Just look what it meant to Bruno Fernandes 💔 pic.twitter.com/fxHSGIYPkI
— ESPN UK (@ESPNUK) May 26, 2021
Athugasemdir