Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   fim 27. maí 2021 20:16
Sverrir Örn Einarsson
Gunnar Magnús: Besti dómari sem við höfum fengið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var hrikalega svart. Ég bara trúi ekki að við höfum tapað þessum leik með hreinum ólíkindum og bara sárt að fá þetta á sig í blálokin og skora svo mark hérna í lokin og ná að jafna. Skiptar skoðanir með það en ég er ekki búinn að skoða það aftur en finnst það mjög undarlegt. “ Sagði Gunnar Magnús Jónsson þjálfari Keflavíkur eftir 1-2 tap hans kvenna gegn ÍBV fyrr í kvöld.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  2 ÍBV

Það er ákveðin huggun harmi gegn fyrir Keflavík að sóknarleikur liðsins var talsvert frískari í dag en að undanförnu þótt sigur hafi ekki unnist um það sagði Gunnar.

„Já algjörlega. Mér finnst hafa verið stígandi með sóknarleikinn. Sköpuðum okkur mun meira en við höfum verið að gera og vorum oft hættulegar fram á við en náðum ekki að gera nema eitt. “

Talsvert hefur verið rætt um dómgæslu það sem af er móti en skiptar skoðanir voru um hvort um rangstöðu hafi verið að ræða í sigurmarki ÍBV. Um dómgæslun leiksins sagði Gunnar.

„Mér fannst hann frábær í þessum leik dómarinn. Hann dæmdi þetta virkilega vel og líka bara hugarfarið hjá honum og hvernig hann bar sig í leiknum og mér fannst hann bara mjög góður og besti dómari sem við höfum fengið núna í sumar.“

Sagði Gunnar en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner