Celtic er að ganga frá þjálfaramálum sínum fyrir næstu leiktíð og verður tilkynnt um það fljótlega að sögn BBC.
Þrátt fyrir sögusagnir um Roy Keane þá er ekki búist við því að hann taki við. Eddie Howe, fyrrum stjóri Bournemouth, verður líklega ráðinn.
Neil Lennon var rekinn frá Celtic í febrúar og John Kennedy steig inn og kláraði tímabilið sem þjálfari liðsins.
Celtic, sem er stærsta félagið í Skotlandi ásamt Rangers, endaði tímabilið titlalaust í fyrsta sinn síðan 2010 en Rangers varð meistari undir stjórn Steven Gerrard.
Celtic hefur verið í viðræðum við Howe síðan í apríl og búist er við því að hann taki við liðinu.
Athugasemdir