Íslendingaliðið Venezia tryggði sig upp í Serie A deildina á Ítalíu í kvöld en þetta varð ljóst þegar liðið gerði 1-1 jafntelfi gegn Cittadella.
Fyrri leiknum lauk með 1-0 sigri Venezia á heimavelli Cittadella. Gestirnir leiddu hins vegar lengi vel í kvöld og leit allt út fyrir það að þetta einvígi færi í framlengingu.
Riccardo Bocalon skoraði hins vegar á 93. mínútu og jafnaði leikinn fyrir Venezia sem var manni færri frá 36 mínútu. Einvígið endar því 2-1 fyrir Venezia sem er mætt í efstu deild á ný.
Bjarki Steinn Bjarkason og Óttar Magnús Karlson eru á mála hjá liðinu og óskum við þeim innilega til hamingju með sætið í efstu deild!
Markið í kvöld má sjá neðst í fréttinni.
WE’RE BACK! 🟠⚫️🟢 pic.twitter.com/wuuWPKJBSz
— Venezia FC (@VeneziaFC_IT) May 27, 2021
This is why you turn on the Serie B promotion match on a random Thursday afternoon. You get to see Venezia score a sick goal a man down at the death to get back to Serie A for the first time since 2000 pic.twitter.com/GejOxKlWsZ
— Nick Loucks (@Nicks2Cents) May 27, 2021
Athugasemdir