Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 27. maí 2021 14:31
Ívan Guðjón Baldursson
Messi boðinn nýr samningur
Hvað gerir Messi?
Hvað gerir Messi?
Mynd: Getty Images
Spænskir fjölmiðlar keppast við að greina frá því að Lionel Messi hefur verið boðinn nýr samningur hjá Barcelona.

Fjölmiðlana greinir á um ýmis samningsatriði en þeir eru flestir sammála um að Messi hafi verið boðinn langtímasamningur.

Fyrstu tvö árin myndi Messi spila fyrir Barca en svo færi hann yfir til Bandaríkjanna að spila með Inter Miami í tvö ár, áfram á samningi hjá Barcelona.

Eftir það fengi hann loks stjórnunarstöðu hjá Barcelona fyrir tímabilið 2025-2026.

Messi er frjálst að ræða við önnur félög þar sem samningur hans rennur út í sumar, viku eftir 34. afmælisdaginn. Manchester City og Paris Saint-Germain eru áhugasöm.
Athugasemdir
banner
banner
banner