Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 27. maí 2021 19:11
Aksentije Milisic
Pepsi Max-kvenna: Dramatískur sigur ÍBV í Keflavík
Mynd: Aðsend
Keflavík 1-2 ÍBV
0-1 Delaney Baie Pridham ('17)
1-1 Aerial Chavarin ('36)
1-2 Antoinette Jewel Williams ('89)

Keflavík og ÍBV áttust við í fyrsta leik dagsins í Pepsi Max deild kvenna.

Fyrir leikinn í dag voru bæði lið með þrjú stig í 7 og 8 sæti deildarinnar.

ÍBV byrjaði betur og kom Delaney Baie Pridham liðinu yfir á 17. mínútu. Á 36. mínútu jöfnuðu heimastúlkur leikinn og var þar að verki Aerial Chavarin eftir undirbúning frá Tiffany Sornpao.

Allt leit út fyrir að jafntefli yrði niðurstaðan en það var á 89. mínútu sem sigurmarkið kom. Það gerði Antoniette Jewel Williams fyrir ÍBV og því mjög sætur sigur gestanna staðreynd.

Keflavík kom boltanum í netið í uppbótartímanum en markið var hins vegar dæmt af. Eftir leikinn er Keflavík því enn án sigurs í sumar á meðan ÍBV er komið með sex stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner