banner
   fim 27. maí 2021 11:41
Elvar Geir Magnússon
Tottenham er búið að tala við Pochettino
Snýr hann aftur til Tottenham.
Snýr hann aftur til Tottenham.
Mynd: Getty Images
Tottenham er búið að hafa samband við Mauricio Pochettino um að taka aftur við Tottenham en BBC og fleiri fjölmiðlar fullyrða þetta.

Sagt er að Pochettino sjálfur hafi áhuga á að snúa aftur til félagsins.

Pochettino kom Tottenham í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2019 en tapaði þar fyrir Liverpool. Hann var svo látinn fara.

Pochettino stýrir nú PSG en er ekki sagður nægilega ánægður í frönsku höfuðborginni, eins og við fjölluðum um í morgun.

Vinsældir Pochettino meðal stuðningsmanna Tottenham hafa aukist enn frekar eftir að hann yfirgaf félagið. Jose Mourinho náði ekki þeim árangri sem vonast var eftir og þá hvarf Tottenham frá einkennum sínum þegar kom að sóknarleik.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner