fim 27. maí 2021 11:30
Elvar Geir Magnússon
Wilshere aftur orðinn félagslaus
Mynd: Getty Images
Jack Wilshere, fyrrum miðjumaður enska landsliðsins, fær ekki nýjan samning hjá Bournemouth og hefur yfirgefið félagið.

Þessi 29 ára leikmaður kom til félagsins í janúar á samningi út tímabilið og spilaði sautján leiki.

Hann hafði verið án félags síðan í októbert eftir að hafa yfirgefið West Ham þrátt fyrir að hafa átt níu mánuði eftir af samningi sínum þar.

Ferill þessa fyrrum leikmanns Arsenal hefur einkennst af meiðslum.

Bournemouth ræðir við Junior Stanislas og Adam Smith sem báðir verða samningslausir í sumar.

Bournemouth féll úr ensku úrvalsdeildinni fyrir ári síðan og mistókst að komast beint aftur upp en liðið tapaði gegn Brentford í umspilinu í Championship.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner