Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 27. júní 2018 14:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Allt í lagi með Maradona - „Hvernig gat ég farið?"
Svona fagnaði Maradona marki Messi sem kom Argentínu í 1-0.
Svona fagnaði Maradona marki Messi sem kom Argentínu í 1-0.
Mynd: Getty Images
Argentíska goðsögnin Diego Maradona er búinn að gefa það út að það sé allt í lagi með sig.

Maradona hefur mætt á alla leiki Argentínu á HM hingað til og var auðvitað mættur til þess að sjá sína menn komast í 16-liða úrslitin í gær. Argentína vann Nígeríu 2-1 á dramatískan hátt.

Maradona fór í gegnum mikinn tilfinningarússíbana á meðan leikum stóð. Hann sofnaði í fyrri hálfleik en þegar Marcos Rojo skoraði sigurmarkið seint fagnaði hann með því að "fokka" á áhorfendur.

Maradona fagnaði greinilega of mikið því hann þurfti hjálp við að komast af vellinum. Eftir leikinn þurfti hann svo að leita sér læknishjálpar, en hann neitar því að hafa farið á spítala eins og greint var frá í fyrstu.

„Ég vil segja öllum frá því að allt í lagi sé með mig," sagði Maradona í Instagram færslu. „Læknir leit á mig og hann mælti með því að ég færi heim fyrir seinni hálfleikinn. En ég vildi vera áfram, hvernig gat ég farið heim?"
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner